top of page

Skírn

Það er alltaf skemmtilegt þegar skírn fer fram í kirkjunni okkar. Það er sérstaklega gaman fyrir börnin að koma fram í kirkjuna og fylgjast með því þegar lítið barn er borið til skírnar. Við fögnum öllum fjölskyldum sem vilja láta skíra börnin sín í kirkjunni okkar.  Við skiljum líka að það er ekki alltaf auðvelt að stilla lítinn einstaking inn á að vera tilbúinn í skírn á þeim tíma sem söfnuðurinn sest niður til Guðsþjónustu og því erum við tilbúin að koma og skíra barn í heimahúsi. 

Skírn í Evrópu

Hvað er skírn

Í skírninni þökkum við Guði fyrir barnið og biðjum Guð að vera nálægt því í öllu lífi þess. Barnið er blessað og tekið í samfélag kristinna og söfnuð kirkjunnar. Í skírninni sameinast viðstaddir í bæn fyrir barninu og framtíð þess.
Jesús sjálfur mælti fyrir um skírnina eins og kemur fram í þessum texta sem oft er nefndur skírnarskipunin.

Síðustu orð Jesú til lærisveina sinna í Matteusarguðspjalli:
“Allt vald er mér gefið á himni og jörðu. Farið því og gjörið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá til nafns föður, sonar og hins heilaga anda, og kennið þeim að halda allt það, sem ég hefi boðið yður. Og sjá, ég er með yður alla daga, allt til enda veraldar.”
(Matt. 28, 18-20).
Skírnin er trúarathöfn þar sem beðið er fyrir barninu og fjölskyldu þess.
Skírnin fer þannig fram að prestur leiðir stundina en gjarnan koma fjölskyldumeðlimir að henni á einn eða annan hátt. T.d. með því að fara með bæn, lesa ritningarlestur eða syngja. Oft setja fjölskyldur sitt mark á stundina í samráði við prestinn. (Þessi texti er fenginn að láni hjá heimasíðu Íslensku Þjóðkirkjunnar).

bottom of page