Íslenska Kirkjan í London og Lúxembourg
Biskup Íslands og Vígslubiskup á Hólum heimsækja Lúxemborg og messa
sun., 04. okt.
|23 Rue de la Chapelle
Spennandi Haustmessa með heimsókn frá Biskup Íslands og Vígslubiskup á Hólum.


Time & Location
04. okt. 2026, 14:00
23 Rue de la Chapelle, 23 Rue de la Chapelle, 5328 Medingen Contern, Luxembourg
About the event
Nú stendur mikið til hjá okkur í íslenska söfnuðinum hér í Lúxemborg því von er á góðum gestum til okkar um helgina 2.-4 október. Ekki nóg með það að Biskup Íslands Frú Guðrún Karls Helgudóttir verði með okkur og prediki í haustmessunni, heldur heimsækir okkur líka Sr. Gísli Gunnarsson Vígslubiskup á Hólum og mun hann ásamt Sr. Sjöfn þjóna fyrir altari. Til þess að kóróna svo þessa spennandi helgi hafa Farfuglarnir okkar verið að æfa sönginn og fá þær svo liðsinni frá Íslenska kórnum í London sem mun leggja leið sína yfir pollinn og vera með okkur ásamt Robin Walker Organista frá London. Og nú vantar bara þig til að gera messuna fullkomna. Við hlökkum mikið til að sjá ykkur öll í messu 4. október kl 14.00 í Dönsku kirkjunni í Medingen Église Saint-Donat de Medingen, 23 Rue de la Chapelle, 5328 Medingen Contern, Luxembourg. Að messu lokinni verður boðið…