top of page
Íslenska Kirkjan í London og Lúxembourg
Jólaguðsþjónusta og Jólaball í London
sun., 07. des.
|London
Takið daginn frá fyrir Jólaguðsþjónustu og Jólaball í London


Time & Location
07. des. 2025, 14:00 – 18:00
London, 6 Harcourt St, London W1H 4AG, UK
About the event
JÓLABALL í LONDON
Nú fer að styttast í aðventuna og kominn tími til að taka daginn frá fyrir Jólaguðsþjónustu og jólaball í London 7. desember kl.14.00. Guðsþjónustan verður eins og venjulega full af hátíðlegum söng sem er í höndum Helga og Íslenska kórsins í London og börnin úr Íslensku Skólanum koma og lesa og syngja. Að Guðsþjónustunni lokinni verður Jólaballið haldið og við fáum heimsókn frá jólasveininum og borðum kökur og drekkum kaffi saman.
Við biðjum ykkur öll um að koma með kökur og góðgæti á kökuhlaðborðið. Við hlökkum til að sjá ykkur.
bottom of page