Góður gestur kom í heimsókn
- Sjofn Müller Thor
- Dec 4, 2023
- 1 min read
Um liðna helgi, á fyrsta sunnudegi í aðventu var Jólaguðsþjónusta íslenska safnaðarins í London haldin. Athöfnin var einstaklega vel sótt og var mikið um söng og gleði. Börnin sem sækja íslensku skólann tóku þátt í helgihaldinu, þau lásu lestra og sungu falleg jólalög og Íslenski kórinn í London söng undurfagra sálma og skemmtileg jólalög undir stjórn Þóru Hallgrímsdóttur. Sérstaklega gleðilegt var að fá góðan gest frá Íslandi í heimsókn, en vígslubiskup og fyrrverandi prestur Íslendinga í London, Jón Aðalsteinn Baldvinsson, kom ásamt konu sinni Margréti og gladdi okkur með nærveru sinni og las Guðspjall dagsins. Það má með sanni segja að þessi heimsókn hafi verið eins spennandi fyrir fullorðna fólkið eins og jólasveinnin svo var fyrir börnin á jólaballi Íslendingafélagsins sem fór fram strax að messu lokinni. Met aðsókn var á jólaballið og var ánægjulegt að sjá mörg ný andlit með krílin skoppandi í kring um jólatréð. Sigríður formaður Íslendingafélagsins og þau sem tóku þátt í skipulagi og framkvæmdi jólaballsins eiga hrós skilið fyrir frábæra skemmtun og erum við þeim og Íslenskuskólanum afar þakklát fyrir gott samstarf.
Íslenski kórinn í London styður frábærlega við safnaðarstarfið og eiga félagar í honum þakkir skildar fyrir þeirra framlag.
Comments