top of page
Search

Biskup Íslands og Vígslubiskup á Hólum á leið til Lúx

11 minutes ago
1 min read

Nú stendur mikið til hjá okkur í Íslenska Söfnuðinum hér í Lúxemborg því von er á góðum gestum til okkar um helgina 2.-4 október. Ekki nóg með það að Biskup Íslands Frú Guðrún Karls Helgudóttir verði með okkur og prediki í haustmessunni, heldur heimsækir okkur líka Sr. Gísli Gunnarsson Vígslubiskup á Hólum og mun hann ásamt Sr. Sjöfn þjóna fyrir altari. Til þess að kóróna svo þessa spennandi helgi hafa Farfuglarnir okkar verið að æfa sönginn og fá þær svo liðsinni frá Íslenska kórnum í London sem mun leggja leið sína yfir pollinn og vera með okkur ásamt Robin Walker Organista frá London. Og nú vantar bara þig til að gera messuna fullko

mna. Við hlökkum mikið til að sjá ykkur öll í messu 4. október kl 14.00 í Dönsku kirkjunni í Medingen Église Saint-Donat de Medingen, 23 Rue de la Chapelle, 5328 Medingen Contern, Luxembourg. Að messu lokinni verður boðið upp á kaffi og kleinur í kirkjunni og þá gefst tækifæri til að heilsa upp á biskupana okkar og kynnast kórmeðlimum frá London og eiga dásamlegan sunnudag saman.


 
 
 

Comments


Íslenska kirkjan í London og Luxembourg

©2023 Íslenska kirkjan í London og Lúxembourg.  Created with Wix.com

bottom of page