top of page
Search

Vorguðsþjónusta Íslensku Kirkjunnar í London

Það er langt frá því að það sé eitthvað farið að glitta í vorið hérna megin við pollinn. Hver grái blauti og kaldi dagurinn tekur við af öðrum og maður hefur á tilfinningunni að það hafi verið 72 dagar í janúar. En daginn er sannarlega tekið að lengja, og við getum farið að láta okkur hlakka til þess að hittast næst í vormessunni í London sem verður haldin 22. Mars kl. 15.00 í Norsku kirkjunni.

Athugið breyttan messutíma og breytta staðsetningu. Að sjálfsögðu verður Sunnudagaskólinn á sínum stað og Íslendingafélagið verður með hið frábæra Páskaeggjabingó að kaffidrykkjunni lokinni.

Við hlökkum til að sjá ykkur og að heimsækja Norðmennina svona einu sinni.


 
 
 

Comments


Íslenska kirkjan í London og Luxembourg

©2023 Íslenska kirkjan í London og Lúxembourg.  Created with Wix.com

bottom of page